SKÁLDSAGA

Júdas

Sagan Júdas eftir Sigurð Róbertsson er einhvers staðar á bilinu milli smásögu og nóvellu. Kom hún út í smásagnasafninu Utan við alfaraleið sem gefið var út af Pálma Jónssyni á Akureyri árið 1942. Sagan fjallar um títtnefndan Júdas, sem eitt sinn var einn af lærisveinum Jesú, og við flest vitum hvernig reiddi af. Biblían dregur nokkuð óvægna mynd af þessum ógæfusama manni sem fyrir vikið hefur þurft að húka í skammarkróknum í næstum 2000 ár. Í sögu Sigurðar er Jesús ekki lengur í aðalhlutverki heldur Júdas og hann reynir að gefa okkur svolítið gleggri mynd af þessum manni og ég er ekki frá því að við hugsum ofurlítið hlýlegar til hans en áður eftir lesturinn. Það er jú mikilvægt að læra að fyrirgefa öðrum.


HÖFUNDUR:
Sigurður Róbertsson
ÚTGEFIÐ:
2016
BLAÐSÍÐUR:
bls. 52

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :